Menu

 

Spurt & svarað

Ertu að velta einhverju fyrir þér? Hér eru svörin!
Veldu umgerð sem hentar þér í stærð, lögun og lit. Sláðu svo inn sjónstyrkinn þinn — við mælum eindregið með að hlaða upp mynd af sjónstyrksseðlinum þínum svo við getum yfirfarið allt áður en pöntunin fer í framleiðslu. Gleraugun berast til þín á Dropp-stöð eða heimsent, yfirleitt innan 7–10 virkra daga.
Já! Við erum með verslun á Eyjaslóð 6 (fyrir ofan Ægi Brugghús) sem er opin um helgar. Kíktu við, skoðaðu úrvalið við hjálpum þér að finna rétta rammann. Við getum líka aðstoðað þig við að setja inn sjónstyrkinn á staðnum.
Já, við bjóðum upp á 40 daga skilafrest — engar spurningar, engar skuldbindingar. Að auki fylgir 1 árs ábyrgð á öllum framleiðslugöllum á umgjörðum.
Já, oftast. Flestir lífeyrissjóðir og stéttarfélög greiða hluta af kostnaði við gleraugnakaupin. Við gefum þér kvittun sem þú sendir inn til sjóðsins þíns. Reglurnar eru mismunandi eftir félagi svo við mælum með að þú skoðir hvað á við þig.
Þú getur hlaðið upp mynd af ávísuninni og við förum yfir hana með þér. Þú getur líka notað gervigreind til að hjálpa þér að lesa skrá hana inn. Við yfirförum alltaf styrkinn áður en pöntun fer í framleiðslu.
Bláljósavörn hentar vel þeim sem eyða löngum tíma fyrir framan skjái — hún getur dregið úr þreytu í augum og gert skjánotkun þægilegri. Hún er ekki nauðsynleg fyrir alla en er vinsæl uppfærsla hjá mörgum viðskiptavinum okkar.
 
 

Tungumál

Tungumál

Innskráning

Innskráning Stofna reikning